Að klappa eða klappa ekki Jónas Sen skrifar 19. nóvember 2012 11:45 Elísabet Waage
Hádegistónleikar í Salnum Matthías Nardeu og Elísabet Waage fluttu verk eftir Couperin og Devienne Miðvikudagurinn 14. nóvember Hádegistónleikar njóta vinsælda og það er töluverð fjölbreytni í boði. Gerrit Schuil píanóleikari spilar t.d. með söngvurum á nokkurs konar óvissutónleikum í Fríkirkjunni; maður veit aldrei fyrir fram hvaða söngvari það er. Einnig eru hádegistónleikar haldnir reglulega í Hörpu og í Salnum í Kópavogi. Hinir síðarnefndu bera heitið Líttu við í hádeginu. Listrænn stjórnandi þeirra er Guðrún Birgisdóttir flautuleikari. Um er að ræða sex tónleika sem dreift er yfir veturinn. Á þrennum þeirra kemur Guðrún sjálf fram, eða einhver úr fjölskyldu hennar. Óneitanlega lyktar það af frændhygli. Ekki það að fjölskyldumeðlimirnir séu ekki hljóðfæraleikarar í fremstu röð. En það eru margir aðrir frábærir tónlistarmenn á Íslandi. Á heimasíðu Salarins voru tónleikarnir sagðir hefjast klukkan 12.15 á miðvikudaginn. Þegar ég gekk þangað inn klukkan átta mínútur yfir tólf var dagskráin þó þegar byrjuð. Hljóðfæraleikararnir voru á sviðinu og voru að kynna hljóðfærin og það sem var í vændum. Ég gat ekki séð að þetta væri auglýst á heimasíðunni, sem var auðvitað bagalegt. Hljóðfæraleikararnir voru Elísabet Waage hörpuleikari og Matthías Nardeau óbóleikari, sonur Guðrúnar. Enga tónleikaskrá var að fá og áheyrendur höfðu greinilega verið upplýstir um hvað átti að flytja áður en ég kom. Þeir sem komu rétt fyrir auglýstan tónleikatíma vissu því ekkert hvað var verið að spila í byrjun. Það varð ekki ljóst fyrr en eftir á. Á efnisskránni voru tónsmíðar eftir Couperin og Devienne. Flutningurinn var til fyrirmyndar. Matthías er óneitanlega fínn hljóðfæraleikari. Hann hefur prýðilegan tón, vandar sig í hvívetna og spilar af sannri tilfinningu. Sömuleiðis var gaman að hlusta á Elísabetu. Leikur hennar var bæði nákvæmur og músíkalskur. Það var því ekkert við sjálfan tónlistarflutninginn að athuga. Um sviðsframkomuna gegndi öðru máli. Á klassískum tónleikum þykir ekki til siðs að klappa á milli kafla í einstöku verki. Aðeins þegar verkið er allt búið. Á tónleikunum var hins vegar klappað á eftir hverjum kafla. Það var allt í lagi í sjálfu sér. Hvaðan kemur þessi regla um að það megi ekki? Fólki fannst greinilega gaman og vildi sýna það með fagnaðarlátum. Þau Matthías og Elísabet hefðu átt að taka almennilega á móti. Brosa fallega, segja "takk", jafnvel hneigja sig. Sýna smá þakklæti. En því var ekki að heilsa. Þau tóku klappinu fálega og glottu bara vandræðalega. Í hvert einasta skipti! Það virkaði yfirlætisfullt og var ljóður á annars ágætri dagskrá. Niðurstaða: Vandaðir tónleikar sem hefði mátt kynna betur á heimasíðu Salarins, auk þess sem sviðsframkoma hljóðfæraleikaranna hefði getað verið afslappaðri og þægilegri.
Gagnrýni Mest lesið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Lífið Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið