Körfubolti

Mike D'Antoni á hækjum á fyrstu æfingunni með Lakers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mike D'Antoni.
Mike D'Antoni. Mynd/Nordic Photos/Getty
Mike D'Antoni, nýr þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-deildinni, mætti á sína fyrst æfingu hjá liðinu í gær. Forráðamenn Lakers ákváðu í byrjun vikunnar að ráða hann frekar en hinn ellefufalda NBA-meistaraþjálfara Phil Jackson.

Mike D'Antoni fylgdist bara með æfingunni í gær á meðan bróðir hans, Dan D'Antoni, nýr aðstoðarþjálfari hjá liðinu, stjórnaði æfingunni. D'Antoni er að jafna sig eftir hnéaðgerð og fór um salinn á hækjum en hann er enn á sterkum verkjalyfjum vegna aðgerðarinnar.

Mike D'Antoni mun ekki stjórna liði Lakers á móti Phoenix í kvöld og því verður Bernie Bickerstaff við stjórnvölinn eins og í síðustu leikjum. Liðið hefur unnið 2 af 3 leikjum undir stjórn Bickerstaff. Fyrsti leikur D'Antoni verður síðan á móti Houston Rockets á sunnudaginn.

„Þetta er frábær borg til að spila hraðan sóknarbolta sem á um leið raunhæfa möguleika á því að vinna NBA-titilinn. Ég get ekki beðið um meira," sagði Mike D'Antoni og sagði myndi elska það að geta komið aftur með "Showtime"-boltann sem liðið spilað með Magic Johnson á níunda áratugnum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×