Fótbolti

Íslenska kvennalandsliðið í 15. sæti heimslistans

Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir fagna hér marki á Laugardalsvelli.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir fagna hér marki á Laugardalsvelli.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu jafnaði sína bestu stöðu á heimslista FIFA sem var birtur í dag en liðið er í 15. sæti – og fer liðið upp um eitt sæti frá því í ágúst. Í Evrópu er Ísland í 9. sæti og er það óbreytt staða. Bandaríkin eru í efsta sæti listans, Þýskaland kemur þar á eftir.

20 efstu kvennalandsliðinu á heimslistanum eru:

1. Bandaríkin

2. Þýskaland

3. Japan

4. Brasilía

5. Frakkland

6. Svíþjóð

7. Kanada

8. England

9.-10. Ástralía

9.-10. Norður-Kórea

11. Ítalía

12. Noregur

13. Danmörk

14. Holland

15. Ísland

16. Suður-Kórea

17. Kína

18. Spánn

19. Finnland

20. Rússland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×