Körfubolti

Ryan Anderson núna orðaður í skiptum fyrir Pau Gasol

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Gasol og Kobe hafa náð frábærum árangri sem samherjar en nú gæti verið komið að endastöð
Gasol og Kobe hafa náð frábærum árangri sem samherjar en nú gæti verið komið að endastöð
Þráðlátur orðrómur um að Los Angeles Lakers vilji skipta Pau Gasol neitar að deyja. Núna er kraftframherjinn og þriggja stiga skyttan Ryan Anderson leikmaður New Orleans Hornets orðaður við Lakers í stað Gasol.

Pau Gasol hefur ekki fundið sig eftir að Mike D´Antoni tók við Lakers á dögunum en það þykir ekki henta Gasol að hlaupa eins mikið og D´Antoni vill að liðin sín geri.

Því er talið að forráðamenn Lakers séu að reyna að finna rétta manninn eða mennina til að fá til liðsins í stað Spánverjans 32 ára gamla.

Talið er að leitað sé að leikmanni sem getur teygt á vörn andstæðingsins en Gasol hefur ekki fengið að vinna mikið undir körfunni eftir að Dwight Howard kom til liðsins í sumar.

Ryan Anderson er leikmaður sem getur skotið fyrir utan auk þess sem hann lék með Howard í ein þrjú keppnistímabil. Nafn hans hefur verið áberandi í umræðunni en talið er líklegt að forráðamenn Lakers vilji sjá hvernig Gasol tekst að leika með Steve Nash áður en gengið verið frá nokkrum skiptum.

Nái Gasol sér ekki á strik er talið að Lakers reyni að senda hann til Hornets fyrir Anderson og mögulega fleiri leikmenn svo skiptin gangi upp launalega séð.

Lakers hefur líka verið orðað við Amar´e Stoudemire frá New York en liðin hafa sagt að engar viðræður hafi farið fram um slík skipti en Stoudemire lék um árabil undir stjórn D´Antoni, bæði hjá Phoenix Suns og New York Knicks.

Gasol á eitt tímabil umfram það sem nú er í gangi eftir af samningi sínum við Lakers en Anderson á þrjú ár eftir af sínum samningi.

Anderson er aðeins 24 ára gamall en hann hefur hitt úr 42% þriggja stiga skota sína á tímabilinu. Hann hefur skorað 17,2 stig að meðaltali og tekið 8 fráköst að jafnaði í leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×