Körfubolti

NBA: Stórkostleg tilþrif hjá Blake Griffin - myndband

Blake Griffin virðist ekki í vandræðum með að glíma við þyngdarlögmálið.
Blake Griffin virðist ekki í vandræðum með að glíma við þyngdarlögmálið. AP
Blake Griffin, framherji LA Clippers í NBA deildinni í körfubolta, sýndi stórkostleg tilþrif í nótt þegar lið hans lagði Detroit Pistons á útivelli. Griffin brá sér í „troðslukeppni" undir lok leiksins þegar þrír leikmenn Clippers brunuðu í hraðaupphlaup og varnarmenn Detroit voru hvergi sjáanlegir.

Matt Barnes, liðsfélagi Griffin, vissi nákvæmlega hvað myndi gleðja áhorfendur í slíkum tilvikum – og hann kastaði boltanum í glerspjaldið þar sem að Griffin var mættur til þess að sýna hvað í honum býr. Myndbandið hér fyrir neðan segir allt sem segja þarf.



<iframe width="640" height="360" src="http://www.youtube.com/embed/wedJlYOuc6c?feature=player_detailpage" frameborder="0" allowfullscreen></iframe>

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×