Handbolti

Kiel valtaði yfir Gummersbach

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / Getty Images
Þýsku meistararnir í Kiel völtuðu yfir Gummersbach, 36-19, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag en leikurinn fór fram í Sparkassen-höllinni, heimavelli Kiel.

Kiel er eftir sigurinn komið í efsta sæti deildarinnar með 33 stig, sama stigafjölda og Rhein-Neckar Löwen en með betri markatölu.

Filip Jicha og Momir Ilic voru atkvæðamestir í liði Kiel en þeir gerðu sjö mörk hvor. Guðjón Valur Sigurðsson gerði tvö mörk og Aron Pálmarsson skoraði eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×