Hlustið þér höfðingjar Teitur Guðmundsson skrifar 5. júní 2012 06:00 Undirritaður hefur um nokkurra ára skeið vakið athygli á ristil- og endaþarmskrabbameini með greinaskrifum, í umræðuþáttum og í daglegri vinnu við heilsu og forvarnir í samskiptum við einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög. Því fagna ég sérstaklega þeirri ályktun aðalfundar Krabbameinsfélagsins að hvetja til skimunar á þeim mikla vágesti sem krabbamein í ristli og endaþarmi er. Þá ber einnig að fagna þeirri umræðu sem fram fór í Morgunblaðinu fyrir helgi og í umræðuþætti Bylgjunnar í kjölfarið. Við skulum ætlast til þess að Alþingi afgreiði loks fjárveitingar til verkefnisins. Ég ætla þó sérstaklega að hrósa einum um fram aðra sem hefur í fjöldamörg ár verið í fararbroddi lækna á Íslandi í meltingarsjúkdómum og verið ötull talsmaður skimunar gegn ristilkrabbameini. Hann hefur, auk þess að vera einn þeirra sem á heiðurinn af þeim klínísku leiðbeiningum, fræðsluritum og myndefni sem til er hérlendis, sameinað breiðfylkingu heilbrigðisstarfsmanna í vitundarvakningu gegn þessu meini á undanförnum árum. Þessi ágæti maður heitir Ásgeir Theodórs, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum. Hann hefur talað fyrir daufum eyrum ráðamanna en náð verðskuldaðri athygli fagfólks, sjúklinga og aðstandenda. Vonandi erum við nú á réttri leið og munum hefja skimun á landsvísu á vegum hins opinbera og látum ekki einhverja tugi eða ríflega eitt hundrað milljónir í kostnað árlega villa okkur sýn, heldur lítum á kostina sem hljótast af því að leita og finna meinið á réttum tíma og spara þannig mun hærri fjárhæðir vegna meðhöndlunar, aðgerðar og eftirfylgni. Þá má ekki gleyma að minnast á þau lífsgæði sem einstaklingar hafa af því að þurfa ekki að undirgangast slík úrræði. Það er þó rétt að benda á það að samkvæmt klínískum leiðbeiningum landlæknis sem hafa verið í gildi frá árinu 2002 og voru endurmetnar í lok árs 2009, kemur skýrt fram hvernig skuli standa að skimun gegn krabbameini í ristli og endaþarmi. Þá er mér ljúft og skylt að segja frá því að slíkt skimunarpróf hefur verið til sölu í öllum apótekum Lyfju í rúmt ár sem samvinnuverkefni Heilsuverndar og meltingarlækna á Landspítala og kallast greiningarpróf gegn ristilkrabbameini. Þar er leitað að duldu blóði í hægðum og samkvæmt skilgreindu verklagi er einstaklingum sem eru jákvæðir fyrir slíku vísað til fullrar ristilspeglunar sem hluta af vinnulagi greiningarprófsins. En hvers vegna er svona lítið vitað um þetta? Það er einfalt að svara því og er ástæðan sú að ekki má auglýsa læknisþjónustu samkvæmt núgildandi læknalögum, né heldur vöru sem tengist slíkri þjónustu. Þann 1. janúar 2013 mun þetta væntanlega breytast en ný lög um heilbrigðisstarfsmenn taka þá gildi. Í þessari umfjöllun skal bent á þessa staðreynd sem vonandi hefur í för með sér meiri möguleika í framtíðinni til kynningar á vöru og þjónustu heilbrigðisstarfsfólks. Þar til ráðamenn fara fram með þeim hætti sem vísindin segja okkur og hefja skimun á landsvísu einstaklingum til hagsbóta samanber hér að ofan verður markmið okkar að vera að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Teitur Guðmundsson Mest lesið Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun