Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund, Lars Barfoed, Torbjörn Nyström, Sara Fleischer og Hrannar Björn Arnarsson skrifa 27. október 2026 13:17 Norrænu ríkisstjórnirnar verða nú að skýra hvaða stöðu Færeyjar, Grænland og Álandseyjar eigi að hafa í opinberu samstarfi Norðurlanda. Úr því á að fá skorið í yfirstandandi endurskoðun Helsingforssamningsins, en sú vinna hefur tafist. Við hvetjum ríkisstjórnirnar til að ljúka verkinu eftir skýrri tímaáætlun og í nánu samráði við löndin þrjú. Lögfræðilega úttektin liggur fyrir og nú er það ríkisstjórnanna að finna lausn. Dragist málið á langinn gætu Norðurlönd misst Grænland og Færeyjar. Helsingforssamningurinn hefur frá árinu 1962 verið grundvöllur opinbers samstarfs Norðurlanda. Aðilar að honum eru norrænu ríkin fimm. Staða landanna þriggja í honum hefur árum saman verið eitt mikilvægasta óleysta álitamálið í samstarfinu, og hún er fjarri því að vera formsatriði eitt. Á þingi Norðurlandaráðs í Ósló í október 2023 sagði formaður grænlensku landstjórnarinnar, Múte B. Egede: „Ef þið viljið ekki taka vináttuna við okkur alvarlega og tryggja að við séum með og að á okkur sé hlustað, verðum við að endurskoða þátttöku okkar hér.“ Í maí 2024 gerðu Grænlendingar hlé á þátttöku í samstarfi norrænu ráðherranna, eftir að Svíar, sem þá fóru með formennsku í samstarfinu, tilkynntu að löndunum þremur yrði ekki boðið á sumarfund norrænu forsætisráðherranna. Á þinginu í Reykjavík í október 2024 sagði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen: „Annaðhvort erum við alveg með eða alls ekki.“ Við tökum þessi orð alvarlega. Bæði Grænland og Færeyjar hafa gert ljóst að þátttaka þeirra í samstarfinu velti á því hvernig málið verður leyst. Við höfum áhyggjur af afleiðingunum fyrir norrænt samstarf ef málið dregst á langinn, ekki síst nú þegar samstarf um öryggis- og viðbúnaðarmál á Norðurlöndum og norðurslóðum hefur fengið nýtt vægi. Það var Norðurlandaráð, samstarfsvettvangur norrænu þinganna, sem átti frumkvæði að því að uppfæra samninginn. Ráðið samþykkti einróma í október 2024 tilmæli 21/2024, sem meðal annars kveða á um að þátttaka Færeyja, Grænlands og Álandseyja í samstarfinu skuli endurspegla þróun sjálfstjórnar þeirra. Að frumkvæði Færeyinga hefur ráðið auk þess veitt löndunum þremur föst sæti í forsætisnefnd sinni frá 1. janúar 2026, og árið 2027 deila Danmörk, Færeyjar og Grænland formennskunni í Norðurlandaráði. Ríkisstjórnirnar hafa líka hafist handa. Í febrúar 2025 ákváðu þær að láta gera lögfræðilega úttekt á þeim ramma sem þjóðarétturinn setur þátttöku landanna þriggja í samningnum. Úttektin, sem Elina Pirjatanniemi og samstarfsfólk hennar við Åbo Akademi unnu, var birt í febrúar 2026. Hinn 16. mars 2026 skipuðu samstarfsráðherrarnir starfshóp með fulltrúum ríkisstjórna allra landanna átta, sem á að gera tillögur að breytingum á Helsingforssamningnum um þátttöku landanna þriggja. Þetta eru mikilvæg skref og við kunnum að meta það starf sem unnið hefur verið. Samkvæmt erindisbréfinu áttu tillögur starfshópsins að liggja fyrir á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í þessari viku. Þess í stað fá samstarfsráðherrarnir stöðuskýrslu um starfið á fundi sínum 28. október. Við skiljum að svo mikilvægt mál krefjist vandaðs undirbúnings, en við vonum að stöðuskýrslan verði áfangi á leiðinni að lausn á málinu, ekki endapunktur. Því lengur sem málið dregst, þeim mun erfiðara verður að halda því trausti sem byggst hefur upp. Þess vegna liggur á. Maiken Poulsen Englund, formaður Norræna félagsins á Álandseyjum (Föreningen Norden Åland)Lars Barfoed, formaður Norræna félagsins í Danmörku (Foreningen Norden Danmark)Torbjörn Nyström, formaður Norræna félagsins í Færeyjum (Norrøna Felagið í Føroyum)Sara Fleischer, formaður Norræna félagsins á Grænlandi (Foreningen Norden Grønland)Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Norðurlandaráð Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun