Fjallað opinskátt um kynlíf 31. ágúst 2012 16:00 Spennandi þáttur Hrefna Björk Sverrisdóttir og Stórveldið framleiða þáttinn 2+6 sem verður á dagskrá Popptíví í vetur. Þátturinn fjallar um kynlíf. fréttablaðið/anton brink „
Þetta er fræðsluþáttur en efnið er séð með augum ungs fólks og við upplifum þetta svolítið í gegnum það," segir Hrefna Björk Sverrisdóttir einn framleiðenda sjónvarpsþáttanna 2+6 sem hefja göngu sína á Popptíví í vetur. Stórveldið framleiðir þættina í samstarfi við Hrefnu Björk. Stjórnendur sjónvarpsþáttanna eru Sunna Sverrisdóttir og Veigar Ölnir Gunnarsson sem bæði eru að stíga sín fyrstu skref í sjónvarpi. Þættirnir verða átta að tölu og hefjast tökur á þeim í næstu viku. Að sögn Hrefnu Bjarkar verður ákveðið efni tekið fyrir í hverjum þætti og nefnir sem dæmi BDSM og sjálfsfróun. „Ungt fólk er mjög opinskátt þegar kemur að kynlífi og það er mjög áhugavert að sjá og heyra hvað það er að spá. Þó það sé opinskátt er ýmislegt sem byggt er á misskilningi og þess vegna er gott og þarft að svara þeim spurningum sem á þeim brenna." Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir verður Sunnu og Veigari innan handar við gerð þáttanna auk fjölda sérfræðinga, leiðbeinenda og kynlífsunnenda. Helstu viðmælendur þáttanna verður þó fólk á aldrinum 18 til 25 ára og segir Hrefna Björk að vel hafi reynst að fá fólk til að tjá sig opinskátt um kynlíf. „Fólk er mjög opið um þessi mál og því hefur gengið vel að fá viðmælendur. En eins og ég segi, þá er þátturinn enn í vinnslu og því er enn tækifæri fyrir fólk að hafa samband ef það lumar á einhverju sniðugu." Hægt er að hafa samband við Hrefnu Björgu í gengum netfangið tveirplussex@storveldid.is.-sm
Lífið Menning Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira