Lögin byrjuð að tínast inn 11. september 2012 08:00 fulltrúarnir 2012 Greta Salóme og félagar kepptu í Eurovision 2012 fyrir Íslands hönd. Leitin að næstu fulltrúum er nú hafin. fréttablaðið/daníel „
Við byrjuðum að taka á móti lögum fyrir undankeppni Eurovision síðastliðinn föstudag. Það er þegar farið að týnast inn og þar á meðal er komið eitt lag frá útlöndum. Lögin þurfa samt að vera frá Íslendingum komin að tveimur þriðju hlutum svo það þarf að athuga hvort það lag sé gjaldgengt í keppnina,“ segir Hera Ólafsdóttir hjá RÚV. Áhugasamir hafa til mánudagsins 8.október til að senda lag sitt til keppni og að sögn Heru eru margir búnir að hringja inn og spyrjast fyrir. „Það geta allir tekið þátt og engin þörf á að vera með lagið fullmixað eða tekið upp í hljóðveri, þó það sé auðvitað ekkert verra. Það má þess vegna taka þetta upp heima í stofu, bara svo framarlega sem laglínan og textinn heyrast vel,“ segir hún. Það má búast við að listi laga sem taka þátt í undanúrslitunum verði tilbúinn í lok október. Fyrsta undanúrslitakvöldið verður svo haldið 12.janúar og úrslitaþátturinn þann 9.febrúar. Aðalkeppnin fer svo fram í Malmö í Svíþjóð 18.maí, en undanúrslitakvöldin verða 14. og 16. þess mánaðar.- trs
Tónlist Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Fleiri fréttir Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira