Göngufólk traðkar Esjuna niður 21. nóvember 2012 07:00 Göngufólk í Mógilsá Svo vinsælt er að ganga upp hlíðar Esjunnar að álagið þykir of mikið á núverandi stíga. Fréttablaðið/GVA
Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur óskað eftir leyfi borgaryfirvalda til að gera gagngerar lagfæringar á fjölförnum stíg upp Esjuna. Í bréfi sem tekið var fyrir hjá skipulagsstjóra segir Helgi Gíslason hjá Skógræktarfélaginu að stígur milli svokallaðs Steins og brúnnar yfir Mógilsá sé ekki á skipulagi en hafi myndast með göngu fólks upp og niður fjallið. „Þar eru mýrarflákar að troðast út og valda skaða á Einarsmýri vegna gangandi umferðar," segir Helgi. Óvinnandi vegur er sagður vera að gera lagfæringar á svæðinu með handafli. Því þurfi að ganga þannig frá stígnum að hægt sé að fara þar upp með lítil vinnutæki. Laga þurfi stíginn svo átroðningur hætti að valda skemmdum. Sömuleiðis að draga þannig úr slysum og auðvelda björgun á fólki. Hægt þurfi að vera að flytja sjálfboðaliða og aðra sem vinna við stíginn upp og niður götuna á sexhjólum. Enn fremur er óskað eftir því að leyft verði að taka möl úr fjallinu í stígagerðina. - gar
Fréttir Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Sjá meira