Innlent

Hellis­heiði lokuð í vestur vegna umferðarslyss

Freyja Þórisdóttir skrifar
Hellisheiði er lokuð til vesturs vegna umferðarslyss en hálkublettir eru á veginum.
Hellisheiði er lokuð til vesturs vegna umferðarslyss en hálkublettir eru á veginum. Vísir/Vilhelm

Hellisheiði er lokuð í vestur vegna umferðarslyss samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar en þar segir einnig að hálkublettir séu á veginum. Þá liggja nánari málsatvik ekki fyrir að svo stöddu.

Hægt er að fylgjast með því hvenær vegurinn verður opnaður á ný á vef Vegagerðarinnar en þar eru einnig settar inn uppfærslur er varða færð.



Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×