Körfubolti

Fær aldrei frí á jólunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er sterk hefð fyrir því í NBA-deildinni að spila á jóladag og það þykir mikill heiður fyrir lið og leikmenn að spila á þessum degi þrátt fyrir að það spilli mikið fyrir jólahaldi fjölskyldu leikmannanna. Á þessum degi fá nefnilega aðeins að spila skemmtilegustu og áhugaverðustu lið deildarinnar.

Einn er sá leikmaður í NBA-deildinni sem er fastagestur í sjónvörpum Bandaríkjamanna á jóladag og það er Los Angeles Lakers-maðurinn Kobe Bryant.

Vegna þessa hefur Kobe ekki fengið að eyða miklum tíma með fjölskyldu sinni á hápunkti jólanna en hann er að nú að spila á þessum degi fjórtánda árið í röð.

Fimm leikir og einn í beinni hér

Eins og undanfarin fjögur ár fara fram fimm leikir á jóladag og fyrir körfuboltaáhugamanninn þá eru þeir hver á fætur öðrum þannig að það er hægt að horfa á NBA-leik í beinni samfellt í meira en þrettán klukkustundir. Stöð 2 Sport mun sýna leik Oklahoma City Thunder og Miami Heat klukkan 22.30 en þarna mætast liðin sem komust alla leið í lokaúrslitin á síðustu leiktíð. Miami Heat liðið hafði þá betur.

Kobe Bryant og félagar taka á móti liði New York Knicks í öðrum leik dagsins sem hefst klukkan átta að íslenskum tíma. Fyrsti leikur kvöldsins er á milli Brooklyn Nets og Boston Celtics. Eftir leik Oklahoma City Thunder og Miami Heat spila síðan Chicago Bulls-Houston Rockets og Los Angeles Clippers-Denver Nuggets.

Kobe bætti leikjamet þeirra Dolph Schayes, Earl Monroe og Shaquille O'Neal í fyrra en allir spiluðu þeir á sínum tíma þrettán leiki 25. desember.

Bryant hefur nú skorað 349 stig í 14 leikjum á jóladegi eða 24,9 stig að meðaltali í leik og þar dregur hann niður fyrsti leikurinn þegar hann fékk aðeins að spreyta sig í fimm mínútur.

Oscar Robertson á metið

Kobe er nú 28 stigum frá því að jafna stigamet Oscars Robertson sem skoraði 377 stig í 12 leikjum eða 31,4 að meðaltali. Robertson var einnig með 12,1 stoðsendingu að meðaltali í þessum tólf leikjum sínum á jóladegi.

Michael Jordan náði aðeins að spila sex leiki á jóladegi en hann skoraði í þeim 170 stig eða 28,3 að meðaltali í leik. Jerry West var með 32,2 stig í leik á þessum degi og Wilt Chamberlain skoraði 31,7 stig að meðaltali.

Hér til hliðar má sjá yfirlit yfir alla leiki Kobe á jóladegi og það er ljóst á þeirri upptalningu að kappinn hefur látið til sín taka á þessum degi enda bæði að skora, skjóta og spila mikið í öllum þessum fjórtán leikjum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×