Körfubolti

NBA í nótt: Phoenix stöðvaði Lakers

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nash í leiknum í nótt.
Nash í leiknum í nótt. Mynd/AP
Steve Nash spilaði sinn fyrsta leik í Phoenix síðan hann fór frá liðinu til LA Lakers fyrir núverandi tímabil. Það reyndist sneypuför en Lakers tapaði, 92-86.

Lakers hafði unnið þrjá leiki í röð og útlitið var gott hjá liðinu í þessum leik. Liðið hafði þrettán stiga forystu í fjórða leikhluta en tapaði henni á lokasprettinum.

Dwight Howard fór meiddur af velli þegar sjö mínútur voru eftir og Phoenix gekk á lagið með því að skora nítján af síðustu 25 stigum leiksins.

Kobe Bryant, sem hefur verið duglegur í að spila félaga sína uppi í síðustu leikjum, var stigahæstur í liði Lakers í nótt með sautján stig. Hann gaf þar að auki níu stoðsendingar.

Michael Beasley skoraði 27 stig fyrir Phoenix en þess má geta að Nash var með ellefu stig og tvær stoðsendingar í leiknum.

New York vann Orlando, 113-97, en Dwight Howard skoraði 20 stig í leiknum. Hann hefur nú skorað minnst 20 stig í 30 leikjum í röð en það er félagsmet hjá New York.

Tyson Chandler og Amare Stoudemire áttu einnig frábæran leik en samanlagt skoruðu þeir 35 stig og nýttu sautján af átján skotum sínum utan af velli.

San Antonio vann Charlotte, 102-78, og þar með sinn níunda sigur í röð. Liðið er í efsta sæti Vesturdeildarinnar og besta sigurhlutfall allra liða í NBA-deildinni.

Efsta liðið í Vesturdeildinni, Miami, hafði betur gegn Brooklyn, 105-85. LeBron James var með 24 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia - Washington 92-84

Indiana - Detroit 98-79

Boston - Sacramento 99-81

New York - Orlando 113-97

Atlanta - Toronto 93-92

Brooklyn - Miami 85-105

Milwaukee - Chicago 88-104

Minnesota - LA Clippers 90-96

San Antonio - Charlotte 102-78

Denver - Houston 118-110

Utah - New Orleans 104-99

Phoenix - LA Lakers 92-86

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×