Handbolti

Atli Ævar markahæstur í tapi SönderjyskE

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Stefán
Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk og var markahæstur hjá SönderjyskE í kvöld þegar liðið tapaði með þriggja marka mun á heimavelli á móti Skjern Håndbold, 30-33.

Atli Ævar skoraði fimm mörk eins og Anders Zachariasen en Anton Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir SönderjyskE-liðið sem var 16-19 undir í hálfleik.

Þetta var fyrsti leikur SönderjyskE-liðsins eftir HM-frí og liðið tapaði alveg eins og í síðustu tveimur leikjum sínum fyrir fríið. SönderjyskE er enn í áttunda sæti en það er síðasta sætið sem skilar sæti í úrslitakeppnina.

AaB Håndbold vann eins marks sigur á toppliði KIF København í kvöld, 23-22, en það var aðeins annað tap KIF á tímabilinu. KIF København er með tveggja stiga forskot á Bjerringbro SV. AaB Håndbold er í 4. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×