Körfubolti

James og Wade með samtals 79 stig

LeBron átti frábæran leik í nótt.
LeBron átti frábæran leik í nótt.
Meistarar Miami Heat lentu heldur betur í kröppum dansi er Sacramento kom í heimsókn í nótt. Tvíframlengja varð frábæran leik og höfðu meistararnir betur að lokum.

Miami er því búið að vinna tólf leiki í röð í NBA-deildinni. LeBron James var stigahæstur á vellinum með 40 stig og 16 stoðsendingar. Hann tók einnig 8 fráköst. Dwyane Wade skoraði 39 stig fyrir Miami.

Miami jafnaði félagsmet með því að skora 141 stig í leiknum. Liðið skildi gestina eftir í annarri framlengingu með því að byrja hana 11-3.

Úrslit:

Philadelphia-Orlando 84-98

Indiana-Golden State 108-97

Miami-Sacramento 141-129

Chicago-Cleveland 98-101

New Orleans-Brooklyn 97-101

Dallas-Milwaukee 90-95

Phoenix-Minnesota 84-83

LA Clippers-Charlotte 106-84

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×