Handbolti

ÍBV með annan fótinn í efstu deild

Nemanja Malovic.
Nemanja Malovic.
Nemanja Malovic, sem er í leyfisleysi á Íslandi, skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV í kvöld er liðið vann öruggan sigur, 25-14, á Þrótti í 1. deild karla í handbolta í kvöld. Staðan í hálfleik var 13-6 fyrir Eyjamenn. Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk.

ÍBV er með 33 stig í efsta sæti 1. deildar eftir leikinn og er svo gott sem búið að tryggja sér sigur í deildinni.

Stjarnan vann svo stórsigur á Víkingi, 19-28, og liðin eru jöfn í öðru til þriðja sæti með 29 stig. Þar sem ein umferð er eftir getur hvorugt liðið náð ÍBV.

Stjarnan á örlítinn möguleika á því að vinna deildina. Þá þarf liðið að vinna innbyrðisleik liðanna á mánudag sem og leik sinn gegn Selfossi í lokaumferðinni. Á sama tíma þarf liðið að treysta á að ÍBV tapi gegn Víkingi.

Malovic er á förum frá Íslandi og verður ekki með í lokaumferðinni gegn Víkingi. Stjarnan á því smá möguleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×