Corvette Shooting Brake Finnur Thorlacius skrifar 20. mars 2013 10:45 Bara nokkuð lagleg breyting á nýju Corvettunni
Breytingin kostar tæpar tvær milljónir króna og slatta af koltrefjum. Breytingafyrirtækið Callaway hefur birt myndir af lengri gerð hinnar nýju Corvettu, einskonar Shooting Brake-útfærslu bílsins. Með þessari lengingu bílsins vill Callaway bjóða kaupendum þann valkost að eignast jafn góðan bíl en fyrir fleiri farþega. Hann mun reyndar kosta 15.000 dollurum meira, eða um 1,9 milljónir, sem samsvarar verði smábíls. Callaway vill meina að í leiðinni bjóðist kaupendum bíll með einstakt útlit og er alveg hægt að taka undir það. Callaway ætlar að mestu að nota koltrefjar við breytingarnar á bílnum og fyrir vikið mun bíllinn svo til ekkert þyngjast. Með því móti mun hann áfram komast á 200 mílna hraða, eins og hefðbundni bíllinn, eða 320 km/klst. Callaway er þegar farið að taka niður pantanir í Corvette Shooting Brake.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent