Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Birgir Olgeirsson skrifar 21. október 2026 10:44 Jón Gnarr sendir „herráðinu“ kaldar kveðjur og segist hafa fengið fá svör við áhyggjum sínum. Með honum á myndinni eru ráðherrar Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður, Hanna Katrín, Daði Már og Þorgerður Katrín. Forysta Viðreisnar fær kaldar kveðjur í nýjum pistli Jóns Gnarr, sem lýsir sér sem hermanni sem hafi verið sendur óstuddur í tapaðan bardaga. Ábendingum hans um bágborið ástand herdeildarinnar hafi lítt verið sinnt og nú telji hann sér betur borgið utan hennar.
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Hann lætur hjá líða að nafngreina samherjana en ýmsar vísbendingar eru um hverjir gegni hvaða hlutverki. Sjálfur segist Jón hafa skráð sig til herþjónustu af hugsjón og baráttuvilja. Hann hafi trúað á málstaðinn og kunnað vel við herdeildina, sem af samhenginu að dæma er þingflokkur Viðreisnar. Hlupu út í buskann og töpuðu Þegar kemur að bardaganum sem Jón lýsir berast böndin að þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst. Þar biðu já-sinnar ósigur með 47,2 prósent atkvæða gegn 52,8 prósentum nei-sinna. Jón segist hafa verið sendur til bardaga í sumar, nokkuð óforvarendis. Jón Gnarr segist ekki hafa gefið upp baráttuviljann þótt hann hafi yfirgefið þingflokk Viðreisnar. Næst mæti hann skipulagðari og betur vopnum búinn.Vísir/Anton Brink „Ég gekk út frá því að við fengjum stuðning úr lofti, fallbyssur myndu varða okkur leið og jafnvel einhver leynivopn. En það var ekkert slíkt, við hlupum bara beint af augum og út í buskann og týndum að lokum hvert öðru. Og töpuðum auðvitað bardaganum. Og bæði liðþjálfanum og prestinum.“ Þessi lýsing rímar við gagnrýni Jóns á kosningabaráttuna í viðtali við Útvarp Sögu í gær. Þar sagði hann tímasetningu atkvæðagreiðslunnar hafa komið sér á óvart og undirbúningnum hafa verið ábótavant. Hlý orð um liðþjálfann Liðþjálfinn fær hins vegar góða umsögn hjá Jóni. Hann hafi haldið utan um hópinn, lagt línurnar og samið við óvinina. „Hann hefur stundum náð að koma á vopnahléi og tímabundnu friðarsamkomulagi.“ Sigmar Guðmundsson virðist vera „liðþjálfinn“ sem fær hlýjar kveðjur í pistli Jóns Gnarr. Pawel Bartoszek tók við af honum sem þingflokksformaður Viðreisnar fyrr í þessum mánuði. Þar virðist Sigmar Guðmundsson vera kominn til sögunnar. Hann stýrði þingflokki Viðreisnar frá 2024 þar til Pawel Bartoszek tók við fyrr í þessum mánuði. Sigmar hefur verið í veikindaleyfi. Með herprestinum gæti Jón átt við Guðbrand Einarsson, fyrrverandi þingmann flokksins, sem hann hefur áður lýst sem hjálpsömum og traustum félaga. Guðbrandur hætti þó á þingi í janúar, löngu fyrir sumarbaráttuna, svo sú vísun er óljósari. Tilskipanir að ofan Kveðjurnar til yfirmannanna eru öllu svalari. Hershöfðingjarnir líta öðru hverju inn til að ávarpa hópinn eða tilkynna honum ákvarðanir herráðsins. Þar liggur næst að horfa til ráðherra Viðreisnar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, Daða Más Kristóferssonar, Hönnu Katrínar Friðriksson og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur. Herráðið gæti þá verið innsti hringur flokksforystunnar eða ríkisstjórnin sjálf. „Ég neita því ekki að oft hafa mér þótt þessar tilskipanir sérkennilegar og ekki í samræmi við það sem ég taldi mig vera að berjast fyrir.“ Jón segist hafa sent aðalstöðvunum ábendingar um alvarlega stöðu innan hópsins og óskað eftir skotfærum, matvælum og öðrum nauðsynjum. Félagarnir séu margir með martraðir og segi ótrúlegustu hluti upp úr svefni. Forysta Viðreisnar undir stjórn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur fær kaldar kveðjur frá Jóni Gnarr. Hann segist hafa varað við alvarlegri stöðu innan hópsins en fengið fá svör.Vísir/Anton Brink „Það hefur því miður verið fátt um svör. Ég hef jafnvel gerst svo frakkur að leyfa mér að efast um að það sé einhver raunveruleg áætlun eða markmið með þessu stríði.“ Hann sé þó hvergi nærri hættur. „Ég vil ekki gerast liðhlaupi en tel mér betur borgið utan herdeildar en innan. Ég hef alls ekki gefið upp baráttuviljann. Ég þarf að ná áttum.“ Lokaorðin eru fyrirheit um framhaldið: „Það er enginn skortur á vígvöllum. En þegar ég mæti næst verð ég skipulagðari og betur vopnum búinn.“
Alþingi Viðreisn Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Sjá meira