Handbolti

Ernir Hrafn með stórleik í sigurleik Emsdetten

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ernir Hrafn
Ernir Hrafn Mynd / Vilhelm
Emsdetten vann í kvöld frábæran sigur, 29-28, á Empor Rostock í þýsku 2. deildinni og liðið hélt í fjögra stiga forystu í efsta sæti deildarinnar.

Ernir Hrafn Arnarson gerði níu mörk fyrir Emsdettan og Ólafur Bjarki Ragnarsson gerði fimm.

Hannes Jón Jónsson átti fínan leik fyrir Eisenach en hann gerði sex mörk fyrir félagið sem tapaði fyrir Bietigheim 28-22. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari Eisenach.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×