Íslenski boltinn

Rohde snýr aftur til Blika

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nichlas Rohde
Nichlas Rohde
Breiðablik hefur komist að samkomulagi við Nichlas Rohde um að leika með félaginu í Pepsi-deildinni í sumar.

Rohde hefur verið á mála hjá Danmerkurmeisturunum í Nordsælland undanfarin ár en kom á láni til Blika á síðari hluta tímabilsins í fyrra og stóð sig vel. Hann lék 10 leiki með Blikum og skoraði 6 mörk í þeim. Þeirra á meðal voru bæði mörkin í 2–0 sigri á Stjörnunni í síðustu umferðinni sem tryggði Blikum annað sætið í deildinni og þátttökurétt í forkeppni Evrópudeildar í ár.

Í tilkynningu frá Breiðabliki segir að ljóst sé að mun mikinn feng sé að ræða að endurheimta leikmanninn unga og efnilega. Rohde mun hitta leikmenn Breiðabliks í æfingaferð liðsins á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×