Fótbolti

Víkingur Ó, Breiðablik og Valur áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Steinn Hafsteinsson.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson. Mynd/Anton
Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði þrennu þegar að Víkingur frá Ólafsvík tryggði sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarkeppni karla eftir 4-2 sigur á ÍA.

Guðmundur Steinn kom sínum mönnum í 3-0 strax í fyrri hálfleik en Björn Pálsson skoraði fjórða mark Víkinga. Alexander Már Þorláksson og Ragnar Már Lárusson skoruðu mörk ÍA.

Þrír leikir fóru fram í undanúrslitunum í kvöld. Breiðablik og Valur komust einnig áfram en Stjarnan og FH eigast svo við annað kvöld.

Breiðablik hafði betur gegn KR, 3-1. Páll Þorsteinsson, Árni Vilhjálmsson og Jökull Elísabetarson skoruðu mörk Blika en Baldur Sigurðsson fyrir KR.

Valsmenn höfðu betur gegn Fylki, 2-0, með mörkum Iain Williamson og Kristins Freys Sigurðssonar.

Víkingur mætir Breiðablik í undanúrslitum á mánudaginn. Valur mætir svo sigurvegaranum úr viðureign Stjörnunnar og FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×