Körfubolti

Jackson var með krabbamein er hann hætti með Lakers

Phil Jackson.
Phil Jackson.
Það styttist í að ævisaga körfuboltaþjálfarans sigursæla, Phil Jackson, komi út en þar verður líkast til margt áhugavert. Þar á meðal er að þjálfarinn sagði leikmönnum sínum frá því í miðri úrslitakeppni árið 2011 að hann væri með krabbamein.

Jackson greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli í mars árið 2011 en þar sem hægt var að halda meininu í skefjum með lyfjagjöf ákvað hann að fara ekki í aðgerð fyrr en eftir tímabilið.

Lakers-lið Jackson var í vondum málum gegn Dallas í maí og þá ákvað Jackson að opna sig við leikmenn þar sem þá vantaði frekari hvatningu.

Hvatningin dugði þó ekki til og Dallas sendi Lakers í frí. Jackson hætti í kjölfarið með Lakers-liðið og hefur ekki þjálfað síðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×