Körfubolti

Boltastrákur hótaði NBA-leikmanni lífláti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Russel Westbrook var sótillur eftir að hann meiddist.
Russel Westbrook var sótillur eftir að hann meiddist. Mynd/AP
Meiðsli Russell Westbrook eru leikmönnum og stuðningsmönnum Oklahoma City Thunder mikið áfall. Boltastrákur á vegum félagsins tók tíðindunum hvað verst.

Westbrook meiddist illa á hné þegar að Patrick Beverley lenti illa á honum þegar sá síðarnefndi ætlaði að stela boltanum af Westbrook.

Beverley leikur með Houston Rockets en liðin eigast nú við í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Beverley þessi er ekki vinsælasti maðurinn í Oklahoma-borg í dag og mun Mitchell Brown, ungur boltastrákur, hafa sent Beverley þessi skilaboð á Twitter: „Patrick Beverley, ég er að koma til að drepa þig.“

Málið er í rannsókn hjá lögreglunni í Oklahoma og félagið hefur fordæmt orð stráksins. Brown baðst síðar afsökunar á þeim en dró hana svo til baka.

„Í gær braust einhvern inn á Twitter-síðuna mína og hótaði þér lífláti. Það var ekki ég. Ég biðst afsökunar,“ skrifaði stráksi þá.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×