Fótbolti

Rúnar Alex æfir með Club Brugge

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rúnar Alex
Rúnar Alex Mynd / kr.is
Hinn efnilegi Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður KR,  mun æfa næstkomandi viku hjá belgíska félaginu Club Brugge en vefsíðan fotbolti.net greinir frá þessu í dag.

Rúnar þykir mikið efni en hann er aðalmarkvörður U-21 landsliði Íslands og vermir varamannabekkinn hjá bikarmeisturum KR en leikmaðurinn er fæddur árið 1995.

Leikmaðurinn hefur áður farið út til æfinga til Liverpool í Englandi og NEC Nijmegen í Hollandi en faðir hans Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, lék til margra ára með belgíska liðinu Lokeren.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×