Handbolti

Bjarni Aron skiptir um félag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Bjarni Aron Þórðarson, fyrrum leikmaður FH, Stjörnunnar og Aftureldingar, er genginn til liðs við þýska B-deildarliðið Tarper Wölfe.

Bjarni Aron hélt utan fyrir tveimur árum og hefur síðan þá spilað með neðrideildarliðunum Grossburgwedel og TG Münden. Hann skoraði 112 mörk með síðarnefnda félaginu í C-deildinni í vetur.

Tarper Wölfe verður nýliði í þýsku B-deildinni næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×