Sport

Þrenna hjá Kristni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristinn Þór Kristinsson.
Kristinn Þór Kristinsson.
Kristinn Þór Kristinsson vann sigur í hlaupagrein alla keppnisdagana á Landsmóti UMFÍ á Selfossi um helgina.

Kristinn vann sigur í 800 metra hlaupi á föstudagskvöldinu, 400 metra hlaupinu á laugardeginum og 1500 metra hlaupinu á sunnudeginum. Í öllum greinunum kom Kristinn í mark um hálfri sekúndu á undan næsta manni.

Kristinn var einnig í lykilhlutverki í 1000 metra boðhlaupinu eftir æsilegan endasprett við Kolbein Höð Gunnarsson. Ljóst er að frammistaða Kolbeins hafði sitt að segja í leið sveitar HSK að silfrinu á Landsmótinu.

Nánar er fjallað um árangur Kristins á vefsíðunni Silfrið.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×