Íslenski boltinn

Tryggvi semur mögulega við HK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Líkur eru á því að Tryggvi Guðmundsson muni spila með HK í 2. deild karla það sem eftir lifir tímabilsins.

Þetta kemur fram á mbl.is í dag en þar segir Tryggvi að hann muni mæta á æfingu hjá HK í kvöld og ræða svo betur við forráðamenn félagsins.

Tryggvi hóf tímabilið með Fylki í Árbænum en samdi um starfslok fyrr í þessum mánuði. Hann er markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi og lék einnig sem atvinnumaður á Norðurlöndunum og í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×