Íslenski boltinn

Íslenskir fótboltastrákar spila í bleiku

Leikmenn KV fagna í bleikum varabúningum sínum.
Leikmenn KV fagna í bleikum varabúningum sínum. Mynd/Aðsend
Topplið KV í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu mun leika í bleikum búningum í heimaleik liðsins gegn Hetti á laugardaginn.

Með þessu vilja Vesturbæingar sýna samkynhneigðum samstöðu í mannréttindabaráttu sinni, en gleðigangan hefst á sama tíma og flautað verður til leiks.

Varabúningar KV eru bleikir en í tilefni dagsins verður sá svarti og hvíti hvíldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×