Handbolti

Tíu marka sigur hjá Flensburg í Svíþjóð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Bongarts
Ólafur Gústafsson og félagar í þýska liðinu Flensburg-Handewitt unnu öruggan tíu marka sigur á sænska liðinu HK Drott í Meistaradeildinni í handbolta í Halmstad í Svíþjóð í kvöld.

Flensburg vann leikinn 37-27 eftir að hafa verið 19-13 yfir í hálfleik.

Flensburg hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í D-riðlinum en liðið vann danska liðið Aalborg Håndbold í fyrsta leik.

Ólafur Gústafsson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg í leiknum en markahæstu leikmenn liðsins voru þeir Jacob Heinl, Thomas Mogensen og Lasse Svan Hansen sem allir skoruðu sex mörk. Anders Eggert skoraði fimm mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×