Fótbolti

Hulda Hrund skoraði en draumurinn úti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hulda Hrund fagnar ásamt leikmönnum Fylkis í sumar.
Hulda Hrund fagnar ásamt leikmönnum Fylkis í sumar. Mynd/Einar Ásgeirsson
Stelpurnar í U17 ára landsliði Íslands luku keppni í milliriðlum Evrópumótsins í dag.

Hulda Hrund Arnardóttir skoraði mark Íslands í 3-1 tapi gegn Spánverjum. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um hvort liðið myndi komast áfram í úrslitakeppni EM.

Spánverjar unnu alla þrjá leiki sína og luku því leik með fullt hús stiga. Írar lögðu Rúmena í hinni viðureign dagsins og tryggðu sér annað sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×