Handbolti

Gunnar Steinn og félagar unnu öruggan sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson og félagar hans í Nantes enduðu tveggja leikja taphrinu í kvöld þegar liðið vann sannfærandi níu marka heimasigur á Tremblay, 34-25, í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Gunnar Steinn var með 3 mörk úr 5 skotum í leiknum auk þess að gefa tvær stoðsendingar á félaga sína samkvæmt tölfræðiskráningu franska sambandsins.

Spánverjinn Alberto Entrerrios var markahæstur hjá Nantes með 7 mörk og landi hans Jorge Maqueda Peno skoraði 6 mörk og gaf 5 stoðsendingar.

Nantes var 16-12 yfir í hálfleik eftir að staðan hafði 9-9 en í seinni hálfleiknum var aldrei vafi um hvar sigurinn myndi lenda.

Nantes hefur náð í átta stig í fyrstu sjö leikjum tímabilsins og er í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×