Handbolti

Aron fór á kostum í glæsilegum sigri Kiel á Löwen

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel unnu toppslaginn gegn Guðmundi Guðmundssyni og sveinum hans í Rhein-Neckar Löwen. Lokatölur 31-28 í leik sem var taumlaus skemmtun.

Löwen komst yfir um tíma í seinni hálfleik en lokakafli leiksins var algjör eign heimamanna í Kiel. Þá hreinlega völtuðu þeir yfir gestina og unnu að lokum sigur. Þeir gáfu fullmikið eftir undir lokin en sigurinn aldrei í hættu.

Topplið Kiel er með fimm stiga forskot á Löwen eftir leikinn. Aron Pálmarsson fór á kostum í liði Kiel og skoraði sjö glæsileg mörk. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Kiel.

Alexander Petersson snéri aftur út á handboltavöllinn í kvöld en hann er meiddur. Alexander skoraði eitt mark fyrir Löwen.

Drengir Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin unnu svo öruggan útisigur gegn Gummersbach, 21-35. Liðið komst þar með upp fyrir Löwen og í annað sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×