Innlent

Sluppu ómeiddir úr veltu en bíllinn gjörónýtur

Gissur Sigurðsson skrifar
Vetrarfærð er nú víða um land.
Vetrarfærð er nú víða um land.
Þrír  menn og tveir hestar sluppu ómeiddir þegar bíll með hestakerru hafnaði utan vegar á Hellisheiði í gærkvöldi. Tveir ferðamenn sluppu líka ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af þjóðveginum um Kleifaheiði í gærkvöldi.

Bíllinn fór margar veltur og er gjör ónýtur og þykir  með ólíkindum að ferðamennirnir skuli hafa sloppið ómeiddir. Vetrarfæri og hálka er um allt land en allir helstu vegir eru þó greiðfærir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×