Bjórglögg Úlfar Linnet skrifar 29. nóvember 2013 15:37
Það er spurning hvort tíminn til að fá sér einn kaldan sé liðinn. Við sé tekinn tími þess að fá sér einn rjúkandi eða jafnvel sjóð-brennandi heitan þegar vel liggur á manni. Eitt er allavega víst að hin hefðbundna jólaglögg hefur fengið verðugan keppinaut. Bjórglögg eða Wassail eins og hún nefnist á ensku er ævaforn drykkur. Fjöldi uppskrifta hefur varðveist í kvæðum frá fyrri öldum svo menn geta gert sér ágæta mynd af því hvernig drykkurinn var. Uppskriftirnar eru fjölbreyttar en eiga það allar sammerktar að bjór er kryddaður, hitaður og ávöxtum eða jafnvel eggjum bætt útí. Við val á bjór í bjórglögg er mikilvægt að taka tillit til þess að hiti dregur fram aðra bragðeiginleika en kuldi og kolsýra. Beiskja verður áberandi og því ráðlegt að velja frekar sætan bjór. Af jólabjórunum þetta árið kemur Jóla Maltbjór sérstaklega til greina í þessu samhengi. Hinsvegar er sjálfsagt að prófa aðrar tegundir því samkvæmt hefðinni gilda engar strangar reglur um bjórglögg. Uppskriftin sem fylgir hér að neðan yljar á köldum vetrarkvöldum. Glöggin ilmar af kryddi og ávöxtum í takt við maltsætu. Setur ný viðmið um það hvernig fara skuli með bjór og kemur flestum skemmtilega á óvart.UppskriftKippa af Jóla Maltbjór (6*330 ml)6 stór epli3 appelsínur ½ tsk. þurrkað engifer½ tsk. þurrkaður kanill½ tsk. rifin múskathneta½ tsk. rifinn appelsínubörkur6 msk. sykurAðferð Setjið eplin heil inn í ofn og bakið við 120 gráður í eina klukkustund. Kreistið safann úr appelsínunum í pott og bætið við bjór, sykri og kryddi. Þegar eplin eru tilbúin eru þau afhýdd og kjarninn tekin úr. Aldinkjötið er maukað með skeið eða töfrasprota og bætt út í pottinn. Þegar blandan hefur verið hituð rólega upp í 70 gráður er bjórglöggin tilbúin en fellur ekki endilega að smekk 21. aldar hvað áferð snertir. Flestum þykir eflaust góður kostur að hella henni gegnum sigti. Kalla má fram froðu með því að bæta örlitlum bjór í hvert glas áður en glöggin er borin fram. Verði ykkur að góðu.
Jóladrykkir Úlfar Linnet Mest lesið Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Lífið Furðuleg forréttindablinda Gagnrýni Innlit: „Ég bý í draumahúsinu“ Lífið Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Menning Hiti í Hringekjunni Tíska og hönnun „Sextán ára stelpa hefur lítið að gera við svona háa upphæð“ Lífið Sýna(r)brjóstin, sýna stuðning Lífið Þau eru tilnefnd til Sjónvarpsverðlaunanna fyrir árið 2023 Bíó og sjónvarp „Gerði grín að líkamanum mínum og sagði að ég ætti að tala minna“ Lífið Innlit í þriggja hæða veitingastaðinn Bryggjuhúsið sem er í húsi frá 1863 Lífið Fleiri fréttir Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Sjá meira