Sannleikurinn: Alltof sterkar perur niðri í héraðsdómi Andri Þór Sturluson skrifar 26. nóvember 2013 17:39 Það er nú einu sinni þannig að sumir sjá ekki rassgat nema borga fyrir það.
Veruleg röskun varð á starfsemi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag vegna ljósavandamála í húsinu. Nýbúið er að skipta um perur í loftljósum hússins en þær eru allt of sterkar og virka nánast eins og ljóskastarar með þeim afleiðingum að menn fá verulega ofbirtu í augun. Þingfesting í máli 21 meints vændiskaupanda fór fram þar í dag. Meintur vændiskaupandi er fínt orð yfir aumkunarvert pervert sem vonast til að lögfræðingurinn sinn geti kjaftað sig út úr þessu. Mikil seinkun varð á dagskrá dómsins vegna þess að fólk, aðallega hinir ákærðu þó, áttu erfitt með að finna dómsalinn vegna ofbirtunnar en flestir voru algjörlega blindaðir. Einhverjir brugðu á það ráð að skýla sér með hettum eða lauslegum flíkum og gátu þannig fikrað sig áfram í ofbirtunni. Að sögn dómvarðar eru nýju perurnar ætlaðar fyrir ljósabekki en voru settar í loftljósin fyrir mistök.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar brúkum við aðeins kerti.
Harmageddon Mest lesið Dreymir þig Svik, Harm og dauða? Harmageddon Er verið að leggja eina valdamestu konu landsins í einelti? Harmageddon Konungur undirganganna Harmageddon The Simpsons biðja Judas Priest afsökunar Harmageddon Nýtt tónlistarmyndband frá Vök Harmageddon Sannleikurinn: "Helvítis fasistar,“ æpti Ögmundur þegar hann var handtekinn við Kerið Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Sannleikurinn: Enn hætta á að sjósundsgarpar drepist og reki á land í Kolgrafafirði Harmageddon Engin Agent Fresco plata á þessu ári Harmageddon „Sá sem er kristinn hefur allar ástæður í veröldinni til að hlakka til“ Harmageddon