Handbolti

Sigurður Eggertsson hefur engu gleymt

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sigurður kann vel við sig í treyju Vals.
Sigurður kann vel við sig í treyju Vals. MYND/ARNÞÓR
Sigurður Eggertsson er mættur á ný í Valstreyju og lék með Val 2 gegn Val í Coca Cola bikar karla í handbolta í gær.

Valur vann leikinn 32-25 eins áður hefur verið greint frá en Sigurður Eggertsson stal senunni með glæsilegu marki sem sjá má hér að neðan.

Sigurður skoraði sex mörk í leiknum en ekkert fallegra en það sem Valur handbolti setti inn á Facebook síðu síðna. Sigurður sveiflar hendinni og skýtur með höndina nánast niðri við gólf, undir slána og Lárus Helgi Ólafsson sér ekki boltann í markinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×