Handbolti

Ólafur Guðmunds með frábæran leik í toppslagnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Mynd/Vilhelm
Ólafur Guðmundsson skoraði níu mörk fyrir Kristianstad þegar liðið vann níu marka sigur á Alingsås, 32-23, í toppslagnum í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Kristianstad og Alingsås voru jöfn að stigum á toppnum fyrir leikinn en Ólafur og félagar voru miklu betri í þessum leik.

Ólafur skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu á fyrstu sjö mínútum leiksins og Kristianstad komst í 5-0. Ólafur bætti við einu marki í fyrri hálfleik en Kristianstad-liðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 17-11.

Ólafur bætti við sex mörkum í seinni hálfleiknum og fór hreinlega á kostum í sókn og vörn. Ólafur hefur verið einn af bestu leikmönnum deildarinnar á leiktíðinni og Kristianstad er með tveggja stiga forskot á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×