Handbolti

Hannes Jón spilar ekki meira á árinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari þýska úrvalsdeildarfélagsins Eisenach, hefur staðfest að Hannes Jón Jónsson verði hvíldur fram yfir áramót vegna meiðsla.

Hannes Jón hefur verið að glíma við meiðsli í bæði öxl og hné í langan tíma. „Við þurfum á honum að halda á seinni hluta tímabilsins og viljum að hann verði þá heill heilsu,“ sagði Aðalsteinn við þýska fjölmiðla.

Hann missir því af síðustu fjórum leikjum ársins en eftir það fer deildin í Þýskalandi í frí á meðan EM í Danmörku stendur yfir.

Hannes Jón greindist með krabbamein í okóber í fyrra en sneri aftur strax í janúar. Eisenach komst upp úr þýsku B-deildinni um vorið og Hannes Jón var kjörinn besti leikmaður tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×