Körfubolti

Lillard stóðst pressuna og tryggði sigurinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skotbakvörður Portland Trail Blazers setti sigurkörfuna gegn Detroit Pistons  með fallegu skoti undir pressu þegar 0,1 sekúnda lifði leiks í nótt.

Lillard lauk leik með 23 stig en LaMarcus Aldridge fór fyrir Portland með 27 stig og 12 fráköst. Liðið hefur verið á mikilli siglingu og unnið alla tíu leiki sína gegn liðum á austurströndinni.

Hápunkta úr leiknum í Detroit, þar á meðal sigurkörfu Lillards, má sjá hér. Fallegustu tilþrif næturinnar má hins vegar sjá hér.

Kevin Love skilaði 30 stigum fyrir Minnesota Timberwolves sem setti niður tólf þriggja stiga körfur í 101-93 sigri á Memphis Grizzlies. Kraftframherjinn setti niður fjórar fyrir utan úr átta skotum auk þess að taka níu fráköst og gefa fjórar stoðsendingar.

Mike Conley, skotbakvörður Memphis, haltraði af velli þegar fjórar mínútur lifðu leiks. Hann hafði farið á kostum og skorað 28 stig.

28 stig frá Kevin Durant skiptu miklu í 101-98 sigri Oklahoma City Thunder á Orlando Magic. Durant innsiglaði sigurinn af vítalínunni í lokin.

Úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.

Sacramento Kings 106-91 Houston Rockets

Memphis Grizzlies 93-101 Minnesota Timberwolves

Drtoit Pistons 109-111 Portland Trail Blazers

Oklahoma City Thunder 101-98 Orlando Magic

Denver Nuggets 102-93 New Orleans Pelicans

Phoenix Suns 106-102 Golden State Warriors

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×