Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í sigri Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson spiluðu vel í sex marka sigri Kiel á Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 31-25.

Guðjón Valur skoraði átta mörk fyrir Kiel en í gær var tilkynnt að hann muni fara frá liðinu í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Aron Pálmarsson bætti við fjórum mörkum fyrir meistarana.

Arnór Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Bergischer og Björgvin Páll Gústavsson varði mark liðsins.

Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Hannover-Burgdorf sem vann öruggan sigur á Eisenach, 33-24. Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Eisenach en Hannes Jón Jónsson er frá vegna meiðsla.

Kiel er nú einu stigi á eftir toppliði Flensburg en á þó leik til góða. Hannover-Burgdorf er í sjöunda sæti með 20 stig, Bergischer er í tólfta sætinu með fimmtán og Eisenach því sautjánda með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×