Handbolti

Flúraðasta konan á HM

Kristiansen á ferðinni á HM.
Kristiansen á ferðinni á HM.
Danska handknattleikskonan Kristina Kristiansen hefur vakið mikla athygli á HM kvenna í handbolta. Ekki bara fyrir leik sinn heldur líka fyrir öll húðflúrin sín. Hún er með fjórtán slík og vill fá sér fleiri.

Nýjasta flúrið er á lærinu. Það er risastór hauskúpa. Hvað annað?

"Mér finnast hauskúpur flottastar og ég er með lítið hauskúpuflúr á öðrum stað. Ég er mjög ánægð með nýja flúrið á lærinu," sagði Kristiansen hin ánægðasta.

"Sum flúrin hafa ákveðna merkingu en önnur ekki. Mér finnst tattú flott og ég vil fá mér fleiri. Það kemur þó ekki til greina að fá sér í andlitið.

Kristiansen hefur farið vel af stað með danska liðinu á HM. Skoraði tíu mörk í fyrsta leik. Hér má sjá viðtal sem Ekstrabladet tók við hana og þar má sjá nýja flúrið á lærinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×