Handbolti

Sexmörk Antons dugðu skammt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anton í leik með Nordsjælland.
Anton í leik með Nordsjælland. Mynd/Heimasíða Nordsjælland
Nordsjælland steinlá gegn Skanderborg á heimavelli 31-23 í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Atli Ævar Ingólfsson og Anton Rúnarsson spila með Nordsjælland sem situr í næstneðsta sæti deildarinnar eftir 19 umferðir.

Anton fór mikinn í leiknum og skoraði sex mörk, þar af fjögur úr vítum, og Atli Ævar skoraði tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×