Handbolti

Hverjir verða valdir handboltamenn ársins?

Narcisse vann í fyrra.
Narcisse vann í fyrra. nordic photos/getty
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, hefur kunngjört hvaða handboltafólk kemur til greina í vali á leikmanni ársins 2013.

Kjörið hefur oft verið mjög umdeilt en Daniel Narcisse frá Frakklandi og Alexandra do Nascimento frá Brasilíu voru valin þau bestu í fyrra.

Í ár eru tilnefndir í karlaflokki: Filip Jicha (Tékkland og Kiel), Mikkel Hansen (Danmörk og PSG), Daniel Narcisse (Frakkland og PSG), Arpad Sterbik (Spánn og Barcelona) og Domagoj Duvnjak (Króatía og Hamborg).

Þessar eru tilnefndir í kvennaflokki: Katarina Bulatovic (Serbía), Anita Görbicz (Ungverjaland), Andrea Lekic (Serbía), Heidi Löke (Noregur), Katrine Lund Haraldsen (Noregur).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×