Fór í sjö blaðaviðtöl í London á einum degi 23. febrúar 2013 13:00 Fyrsta plata Ólafs hjá Universal, For Now I Am winter, kemur út á mánudaginn. fréttablaðið/stefán
For Now I Am Winter, þriðja hljóðversplata Ólafs Arnalds og sú fyrsta á vegum útgáfurisans Universal, kemur út á mánudaginn. Aðspurður segist hann ekki finna fyrir auknum þrýstingi í kringum plötuna frá Universal, nema í kynningarmálum. Til að mynda er hann nýkominn frá London þar sem hann fór í sjö viðtöl á einum degi. Hann fer í annan kynningarleiðangur til New York í byrjun mars. „Þetta er svolítið batterí sem maður þarf aðeins að venjast.“ Miklu púðri var eytt í plötuna sem var tekin upp að hluta með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu. Útsetningar voru í höndum Nico Muhly og söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco syngur fjögur lög á plötunni. Þetta er í fyrsta sinn sem sungið er á plötu Ólafs. Hann er sammála því að þetta sé aðgengilegasta platan hans til þessa. „Það er kannski aðallega út af því að það er söngur í nokkrum lögum en hún er líka stærri og elektrónískari og það er aðeins meira að gerast,“ segir Ólafur en tekur fram að ekkert popp sé ferðinni. „Það var meðvitað hjá mér að breyta um stíl en ekkert endilega markmiðið að verða aðgengilegri. Ég er búinn að gera svolítið mikið af músík síðustu árin, bæði plötur og fyrir kvikmyndir. Mér fannst þetta vera orðið svolítið mikið það sama og ég tók meðvitaða ákvörðun um að finna eitthvað nýtt til að maður gæti enduruppgötvað sjálfan sig.“ Ólafur hefur boðið aðdáendum sínum að endurhljóðblanda lag eftir hann á netinu. Núna hefur hann gengið skrefinu lengra því hægt er að ná í lög til niðurhals, breyta þeim og senda í „remix“-keppni. Þau bestu verða gefin út á EP-plötu í gegnum vefsíðuna Spotify. „Það er strax komin nokkur áhugaverð lög,“ segir hann. „Þetta er eitthvað sem ég hefði ekki getað gert án Universal því þetta eru flókin forrit sem kosta örugglega sitt.“ Nýtt myndband með Ólafi við lagið Old Skin er einnig væntanlegt. Leikstjóri var Magnús Leifsson, sem fékk Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir myndband sitt við Glow með Retro Stefson. Fram undan hjá tónlistarmanninum eru útgáfutónleikar í London, Berlín, New York og Los Angeles þar sem hann spilar með þarlendum sinfóníuhljómsveitum. Að þeim loknum fer hann í þriggja mánaða hefðbundnari tónleikaferð í vor með eigin hljómsveit og heldur svo í annan túr í haust. „Það er svolítið skrítið að hugsa til þess að maður getur ekki lofað sér í neitt fyrr en á næsta ári,“ segir hann léttur. freyr@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið „Pabbi minn gaf okkur saman“ Lífið Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tíska og hönnun Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Lífið Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? Lífið Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið Leikari, óperusöngvarar og sjómaður vilja stýra óperunni Menning Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“