Skemmtileg lög um tilfinningar og dauða Freyr Bjarnason skrifar 16. maí 2013 16:00
Sjötta plata bandarísku hljómsveitarinnar The National, Trouble Will Find Me, kemur út eftir helgi á vegum 4AD. Þrjú ár eru liðin síðan High Violet kom út, sem margir töldu eina af plötum ársins. Í viðtali tímaritsins Uncut lýsir söngvarinn Matt Berninger mörgum lögum á Trouble Will Find Me sem „skemmtilegum lögum um dauðann“ og bætir við að þau séu beinskeyttari og tilfinningaríkari en fyrri verk hljómsveitarinnar. Í sama viðtali segir gítarleikarinn Aaron Dessner lagið Pink Rabbits vera eins konar blöndu af The Band og frönsku hljómsveitinni Air. The National var stofnuð í Ohio árið 1999 af Matt Berninger, bræðrunum Aaron og Bryce Dessner, og öðrum bræðrum, Scott og Bryan Devendorf. Hljómsveitin vakti almenna athygli með fjórðu plötu sinni Boxer árið 2007 sem seldist þrefalt meira en Alligator sem kom út tveimur árum áður. High Violet sló svo rækilega í gegn og seldist í yfir 600 þúsund eintökum. Eftir 22 mánaða tónleikaferð til að fylgja eftir High Violet sneru meðlimir The National heim til sín í Brooklyn í New York. Fljótlega byrjaði Dessner að vinna að nýjum lögum og hreif félaga sína með sér. „Eftir að við vorum búnir að fylgja High Violet eftir fannst mér eins og við værum loksins komnir þangað sem við vildum vera. Núna gátum við slakað á, ekki á metnaði okkar, heldur vegna þess að við þurftum ekki að sanna okkur lengur,“ sagði Berninger. Til að hita upp fyrir plötuna var heimildarmyndin Mistaken For Strangers frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Tribeca 17. apríl síðastliðinn. Hægt er að sjá sýnishorn úr myndinni í spilaranum hér fyrir ofan. Tom Berninger, yngri bróðir söngvarans Matts, leikstýrði henni. Þar er hljómsveitinni fylgt eftir á stærstu tónleikaferð sinni til þessa og á sama tíma varpað ljósi á samband bræðranna fjögurra. Trouble Will Find Me hefur fengið flotta dóma, eða 9 af 10 mögulegum hjá Clash og fjórar stjörnur í tímaritunum Mojo og Uncut. Hið síðastnefnda segir The National enn og aftur leita að upplyftingu í melankólíunni. Tímaritið Q er ekki eins hrifið og gefur henni þrjár af fimm mögulegum og segir að þrátt fyrir að syngja um tilfinningar hljómi stór hluti plötunnar eins og hún sé á sjálfsstýringu. The National ætlar í tónleikaferð um heiminn til að fylgja plötunni eftir. Fyrstu tónleikarnir verða í New York í kvöld. Í sumar spilar hún á fjölda tónlistarhátíða, þar á meðal á Bonnaroo, Rock Werchter, á Hróarskeldu og á Lollapalooza. Spiluðu Sorrow í sex klukkustundirThe National tók þátt í gjörningi listamannsins Ragnars Kjartanssonar í New York í byrjun maí þegar hún spilaði lag sitt Sorrow af plötunni High Violet í sex klukkustundir. Alls spilaði hún lagið 105 sinnum. Ragnar lét liðsmenn sveitarinnar fá vatn, súkkulaði og brennivín upp á svið til að halda þeim gangandi og gekk gjörningurinn eins og í sögu.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira