Handbolti

Dæma í asísku Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jónas Elíasson
Jónas Elíasson
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson handknattleiksdómarar hafa fengið það verkefni að dæma í Asian Club League Championship en parið var valið af alþjóða dómarasambandinu IHF.

Mótið fer fram í Katar í nóvember og dvelja dómararnir þar frá 6. nóvember til 22. nóvember meðan á mótinu stendur.

Alls verða tíu dómarapör starfandi á mótinu en aðeins þrjú pör koma frá Evrópu og því er þetta mikill heiður fyrir Íslendingana.

Anton Gylfi dæmdi árum saman ásamt Hlyni Leifssyni og voru þeir eitt besta dómarapar á Íslandi í áraraðir en Hlynur lagði flautuna á hilluna í vor og tók því Anton saman við Jónas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×