Of mikið tangódjamm Jón Júlíus Karlsson skrifar 2. nóvember 2013 08:00 Bandaríska hljómsveitin reyndi á þolinmæði tónleikagesta. fréttablaðið/arnþór
Tónlist Yo La Tengo Iceland Airwaves-hátíðin Harpa-Silfurberg Það voru margir búnir að bíða lengi eftir að sjá bandarísku hljómsveitina Yo La Tengo en hún hefur verið starfandi frá árinu 1984. Sveitin lék á Iceland Airwaves í Hörpu á fimmtudagskvöld og voru þetta fyrstu tónleikar hennar hér á landi. Yo La Tengo á sér marga aðdáendur hér á landi. Sveitin gaf nýverið út plötuna Fade og er að fylgja henni eftir á tónleikaferðalagi um þessar mundir. Tónleikarnir byrjuðu vel og troðfullt var út úr dyrum þegar sveitin hóf leik. Yo La Tengo skipa hjónin Ira Kaplan og Georgia Hubley sem stofnuðu sveitina á sínum tíma og James McNew sem gekk til liðs við hana árið 1989. McNew leikur aðallega á bassa en greip líka í gítarinn. Hann gerði sér lítið fyrir og sleit tvo strengi á miðjum tónleikunum, fipaðist þó ekkert og kláraði lagið. Hátindur tónleikanna var þegar hljómsveitin lék lagið Ohm af nýjustu plötu sinni. Þægilegt og skemmtilegt lag. Að því lagi loknu sigu tónleikarnir heldur niður á við. Langir gítarkaflar reyndu á þolinmæði tónleikagesta og heldur fór að fækka í salnum sem áður var troðfullur. Jón Júlíus Karlsson Niðurstaða: Fín tónlist en óþarflega langir gítardjammkaflar báru athygli tónleikagesta ofurliði.
Gagnrýni Mest lesið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Etur kappi við Obama og Reynolds Bíó og sjónvarp Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira