Íslenski boltinn

Vill nálgast landsliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður Fram, semur við Celtic í vikunni.
Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður Fram, semur við Celtic í vikunni. Mynd/Daníel
Fram verður án síns helsta markahróks í Pepsi-deild karla næsta sumar þar sem að félagið hefur selt Hólmbert Aron Friðjónsson til skoska stórliðsins Celtic. Hann heldur sjálfur utan til Skotlands á morgun þar sem hann mun skrifa undir samninginn.

Samkvæmt skoskum fjölmiðlum greiðir Celtic um 23 milljónir króna en samkvæmt heimildum Vísis er hún undir 20 milljónum. HK fær svo 35 prósenta hlut af sölunni en Hólmbert, sem er tvítugur, lék með félaginu til ársins 2011.

„Það er allt frágengið og vantar bara blekið á pappírinn,“ segir Hólmbert Aron sem kveður Safamýrina eftir tvö og hálft tímabil í bláa búningnum. Hann fór einnig til reynslu til hollenska liðsins Heracles sem lagði sömuleiðis fram tilboð í Hólmbert.

„Ég hefði tekið smærra skref með því að fara til Hollands og það hefði ef til vill hentað mér betur nú. En Celtic hafði mikinn áhuga og var mér afar vel tekið þar. Mér leist svo vel á allar aðstæður og tel að ég fái tækifæri þar til að taka framförum.“

Neil Lennon, stjóri Celtic, hefur sagt í skoskum fjölmiðlum að hann vilji nota Hólmbert Aron strax og hann verður gjaldgengur með félaginu um áramótin.

Hólmbert segir að hann hafi þroskast mikið sem leikmaður á síðustu árum og að hann sé reiðubúinn fyrir þetta stóra skref.

„Ég finn mikinn mun á mér og er til að mynda mun rólegri á vellinum og líður almennt betur. Sjálfstraustið hefur líka verið að aukast og það hefur sitt að segja. Ég lít björtum augum á framtíðina og ætla mér að verða enn betri leikmaður.“

Hann segir stóra markmiðið hjá sér að komast íslenska A-landsliðið. „Vonandi tekst mér að nálgast landsliðið þó svo að það sé afar mikil samkeppni þar, sérstaklega í sóknarlínunni. En ef maður nær að standa sig vel hjá liði eins og Celtic tel ég að það verði ávallt fylgst með manni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×