Missti soninn í flugslysi: „Af hverju megum við ekki sjá?“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. janúar 2014 15:28 Kristín Dýrfjörð er móðir Sturlu Þórs Friðrikssonar sem fórst í flugslysi í Skerjafirði árið 2000. mynd/gva „
Ísland er ekkert öðruvísi en önnur lönd og svona myndbönd birtast alls staðar,“ segir Kristín Dýrfjörð um birtingu Vísis í gær á myndbandi sem sýnir brotlendingu TF-MYX vélar Mýflugs á Akureyri í fyrra. Kristín er móðir Sturlu Þórs Friðrikssonar sem fórst í flugslysi í Skerjafirði árið 2000 og segist hún ekki hafa nokkurn áhuga á því að sjá myndbandið af flugslysinu á Akureyri. Hún segir hins vegar á Facebook-síðu sinni að hún skilji ekki þá afstöðu að birting myndbandsins í gær hafi verið „tilfinningaklám“. „Okkur finnst sjálfsagt að skoða sambærileg myndbönd utan úr heimi, og allir miðlar um allan heim birta svona myndir,“ segir Kristín í samtali við Vísi. „Á sama tíma eru margir á þeirri skoðun að myndbönd af atvikum hér heima eigi að loka inni og helst henda öllum afritum nema til opinberra aðila. Það gengur ekki upp.“ Gætir tortryggni þegar hlutirnir eru lokaðir Kristín nefnir erlend dæmi um myndbönd af hörmungaratburðum sem ratað hafa í heimsfréttirnar. Tekur hún sem dæmi árásina á Tvíburaturnana í New York árið 2001. „Hálfur heimurinn sat límdur yfir þeim atburði þar sem þúsundir létu lífið,“ segir Kristín og nefnir einnig lestarslysið á Spáni í fyrrasumar þar sem 77 létust. „Við setjum okkur upp eins og við séum eitthvað öðruvísi en annað fólk í heiminum. En það gætir tortryggni þegar hlutirnir eru lokaðir. Af hverju megum við ekki sjá?“ Skjáskot úr myndbandinu sem Vísir birti í gær af brotlendingunni við Hlíðarfjall. Birtingin mikilvæg Í langri stöðuuppfærslu á Facebook segist Kristín treysta rannsóknarnefndinni hæfilega. Orðalagið í frumskýrslunni gefi ekki tilefni til annars. „Ef einhvern tímann er réttur tími til að fjalla um slysið er það einmitt núna þegar enn gefst tími til að vinna sanngjarna skýrslu. Ekki gleyma að það eru aðstandendur eins þeirra sem fórst í slysinu sem eru ekki sáttir við skýrsluna og opnuðu á málið.“ Hún segir birtingu myndbandsins mikilvæga fyrir þá sem eru að skoða málið frá mörgum hliðum og með því að gera það opinbert sé það um leið orðið gagn fyrir þá sem hafa sértæka þekkingu á flugi og geta lagt sjálfstætt mat á það sem þar kemur fram. Jafnvel þó þeir séu ekki á launum hjá rannsóknarnefndinni. „Flakið er bara flak“ Kristín segist við Vísi varla muna eftir umfjöllun um flugslys síðasta áratug þar sem myndir frá Skerjafjarðarslysinu þar sem sonur hennar fórst eru ekki notaðar. „Við hjónin ætluðum ekkert að skipta okkur af opinberri umfjöllun um slysið núna enda þjóðin eflaust búin að fá nóg af okkur, en mér ofbauð í gær þegar ég las status eftir status um að þetta væri bara tilfinningaklám.“ Um flugslysið í Skerjafirði segir hún á Facebook að sennilega líði ekki sá dagur að hún hugsi ekki um atburðinn og afleiðingar hans á einn eða annan hátt, en að flakið sé bara flak. „Að heyra fréttir af ungu fólki sem lætur lífið í slysum eða örkumlast, það hreyfir við mér. Að heyra af fréttir af flugslysum og öðrum slysum, hreyfir við mér. Að heyra þyrluna koma inn á nóttinni hreyfir við mér. Að skynja það að einhverstaðar sé fólk sem er að ganga í gegn um erfiðustu stundir lífsins, hreyfir við mér. Mér er oft hugsað til starfsfólks á gjörgæsludeildum, til þeirra sem bíða skelkaðir í aðstandandaherbergjum. Það hreyfir við mér og finn að þá er stutt í kvikuna. Flak er hinsvegar bara flak.“ Frá minningarathöfn um þá sem létu lífið í flugslysinu í Skerjafirði.mynd/valli
Akureyri Flugslys í Hlíðarfjalli Fréttir af flugi Flugslys í Skerjafirði 2000 Tengdar fréttir Myndband af flugslysinu við Hlíðarfjallsveg Fréttastofa 365 birtir nú í fyrsta sinn opinberlega myndband sem sýnir þegar TF-MYX sjúkraflugvél Mýflugs brotlendir á akstursíþróttabraut við Hlíðarfjallsveg á Akureyri hinn 5. ágúst 2013. Tveir létust í flugslysinu. Fréttastofan metur það svo að birting myndbandsins eigi erindi við almenning m.a vegna forvarnar- og upplýsingagildis. 6. janúar 2014 15:30 Könnun Mýflugs: „Ekkert ábótavant sem þarf að bregðast við“ "Við getum ekki rannsakað flugslys. Við höfum enga þekkingu til að gera slíkt og svo sem ekki trúverðugur aðili til þess heldur,“ segir flugöryggisfulltrúi Mýflugs. 6. janúar 2014 13:44 Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum Flugslysið við Hlíðarfjall á Akureyri í fyrra sem Vísir hefur fjallað um í dag er það þriðja á rúmum fjórum árum þar sem flugvél var í lágflugi. 6. janúar 2014 17:00 Læknir óttaðist um líf sitt og spáði að sjúkraflug Mýflugs myndi enda illa Fyrrverandi læknisfræðilegur forsvarsmaður sjúkraflugs á Akureyri kveðst hafa gert margar athugasemdir við sjúkraflug Mýflugs. Hann hafi verið hætt kominn í lágflugi Leifs Hallgrímssonar, framkvæmdastjóra Mýflugs. 7. janúar 2014 07:00 Ísland í dag: Fréttaskýring um flugslysið við Hlíðarfjallsveg Í meðfylgjandi myndskeiði má nálgast fréttaskýringu sem birtist í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld um flugslysið á akstursíþróttabrautinni við Hlíðarfjallsveg á Akureyri 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskylda eins þeirra sem lést í slysinu hefur efasemdir um rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa og hefur farið fram á lögreglurannsókn á slysinu. 6. janúar 2014 21:48 Ályktanir rannsóknarnefndar stangast á við framburð vitna Lögmaður barna Péturs Tryggvasonar sjúkraflutningamannsins sem lést í flugslysinu í Hlíðarfjalli, segir nú til vandlegrar skoðunar að óska opinberrar rannsóknar á brotlendingunni og tildrögum hennar. 6. janúar 2014 09:17 Vilja rannsókn á Hlíðarfjallsslysinu Bróðir sjúkraflutningamanns sem fórst er sjúkraflugvél brotlenti á kappakstursbraut á Akureyri í ágúst hyggst krefjast opinberrar rannsóknar á slysinu. Flugstjórinn lést einnig í slysinu en aðstoðarflugmaðurinn, sem varaði hann við því að flogið væri allt 6. janúar 2014 07:00 Ostaflutningar töfðu sjúkraflug Sjúklingur er sagður hafa þurft að bíða í klukkustund á Egilsstöðum eftir sjúkraflugi á vegum Mýflugs en flugvélin tafðist þar sem verið var að flytja hálft tonn af osti fyrir Bónus. 7. janúar 2014 12:40 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Fleiri fréttir Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Fjórðungur Hringvegarins lokaður Drengur skar mann í Strætó Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Sjá meira
Myndband af flugslysinu við Hlíðarfjallsveg Fréttastofa 365 birtir nú í fyrsta sinn opinberlega myndband sem sýnir þegar TF-MYX sjúkraflugvél Mýflugs brotlendir á akstursíþróttabraut við Hlíðarfjallsveg á Akureyri hinn 5. ágúst 2013. Tveir létust í flugslysinu. Fréttastofan metur það svo að birting myndbandsins eigi erindi við almenning m.a vegna forvarnar- og upplýsingagildis. 6. janúar 2014 15:30
Könnun Mýflugs: „Ekkert ábótavant sem þarf að bregðast við“ "Við getum ekki rannsakað flugslys. Við höfum enga þekkingu til að gera slíkt og svo sem ekki trúverðugur aðili til þess heldur,“ segir flugöryggisfulltrúi Mýflugs. 6. janúar 2014 13:44
Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum Flugslysið við Hlíðarfjall á Akureyri í fyrra sem Vísir hefur fjallað um í dag er það þriðja á rúmum fjórum árum þar sem flugvél var í lágflugi. 6. janúar 2014 17:00
Læknir óttaðist um líf sitt og spáði að sjúkraflug Mýflugs myndi enda illa Fyrrverandi læknisfræðilegur forsvarsmaður sjúkraflugs á Akureyri kveðst hafa gert margar athugasemdir við sjúkraflug Mýflugs. Hann hafi verið hætt kominn í lágflugi Leifs Hallgrímssonar, framkvæmdastjóra Mýflugs. 7. janúar 2014 07:00
Ísland í dag: Fréttaskýring um flugslysið við Hlíðarfjallsveg Í meðfylgjandi myndskeiði má nálgast fréttaskýringu sem birtist í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld um flugslysið á akstursíþróttabrautinni við Hlíðarfjallsveg á Akureyri 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskylda eins þeirra sem lést í slysinu hefur efasemdir um rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa og hefur farið fram á lögreglurannsókn á slysinu. 6. janúar 2014 21:48
Ályktanir rannsóknarnefndar stangast á við framburð vitna Lögmaður barna Péturs Tryggvasonar sjúkraflutningamannsins sem lést í flugslysinu í Hlíðarfjalli, segir nú til vandlegrar skoðunar að óska opinberrar rannsóknar á brotlendingunni og tildrögum hennar. 6. janúar 2014 09:17
Vilja rannsókn á Hlíðarfjallsslysinu Bróðir sjúkraflutningamanns sem fórst er sjúkraflugvél brotlenti á kappakstursbraut á Akureyri í ágúst hyggst krefjast opinberrar rannsóknar á slysinu. Flugstjórinn lést einnig í slysinu en aðstoðarflugmaðurinn, sem varaði hann við því að flogið væri allt 6. janúar 2014 07:00
Ostaflutningar töfðu sjúkraflug Sjúklingur er sagður hafa þurft að bíða í klukkustund á Egilsstöðum eftir sjúkraflugi á vegum Mýflugs en flugvélin tafðist þar sem verið var að flytja hálft tonn af osti fyrir Bónus. 7. janúar 2014 12:40